> Kvikmyndataka, klipping og hljóðsetning: KRISTINN PÉTURSSON
> Á síðasta degi þorra slóst ég í för með Jóni Knúti vini mínum til fundar við tvo þjóðþekkta djassara að spjalla við þá um þann þriðja, Viðar Alfreðssson trompetleikara. Jón var að draga að sér efni í útvarpsþátt um Viðar og hafði því upptökugræjur meðferðis. Mér fannst efnið áhugavert og hugsaði með mér: því ekki að mynda viðtölin? Hér er því e.k. supplementary með útvarpsþætti Jóns sem útvarpað var um páskana síðustu. Ég kalla þessa mynd „Drög að heimildarmynd“ þar sem hér er aðeins rætt við Tómas R. og Vernharð Linnet og lítið um aðra myndræna framsetningu. En, viðmælendurnir eru fróðir og stórskemmtilegir.