Helstu atriði úr fyrirlestri mínum 'Framtíðin þeirra en ekki fortíðin okkar' í Brekkuskóla, Akureyri á Haustþingi BKNE og KSNE, 3. október 2014.
Ingvi Hrannar Ómarsson, kennari og frumkvöðull.
Í dag eru flestir skólar sem eru að fjárfesta í nýjustu tækni að gera það án þess að breyta hugsunarhætti eða kennsluháttum nema að örlitlu leyti. Markmið tækniinnleiðingar í skólum, ef þau eru einhver, virðast bara vera að gera það sem við erum að gera áður nema bara hraðar. Láta þau glósa hraðar, auðvelda kennaranum að fara yfir krossapróf, lesa bækur af spjaldtölvum og fylla inn í vinnubækur í spjaldtölvunni ennþá með því yfirmarkmiði að bæta árangur í samræmdum prófum. Þessi samræmda leið þar sem allir fá jafn mikið af öllu, á sama tíma með sömu aðferð og aðeins örfáar greinar mældar á einfaldan og fljótlegan hátt er fáránleg og brenglar sýn kennara, foreldra og ekki síður nemendanna sjálfra á hvað raunveruleg, góð menntun sé. Raunveruleg, djúp menntun verður ekki mæld á krossaprófi heldur 10-20 árum eftir að henni lýkur formlega.
Skólakerfið er ennþá sett upp eins og verksmiðjur á meðan atvinnulífið spyr hvar fólkið sé sem þau eru að leita að. Ekki fólki sem getur setið í 8 tíma, þagað og fylgt leiðbeiningum.
Þetta er kolröng leið. Því meira sem við samræmum alla þekkingu því minna virði verður hún. Það er verið að leita að starfsfólki sem kann eitthvað annað…. þó vanalega er þetta fólk aldrei fengið í vinnu því þau eru fólkið sem býr til vinnu fyrir aðra og skapar eitthvað nýtt.
Get started for free
24/7 customer support
Our customer support team is available to help 24/7. Enterprise members also receive dedicated account managers and a guaranteed uptime SLA.
© 2026 Vimeo.com, Inc. All rights reserved.
TermsPrivacyYour Privacy ChoicesU.S State PrivacyCopyrightCookies