Verkefnalista dreift, yfirlit yfir aðgerðir ríkisstjórnarinnar, frá upphafi bankahruns og fram á þennan dag, bæði þeirrar föllnu og núverandi. Samantekt um aðgerðir í öllum ráðuneytum. Jóhanna fer yfir stöðuna í þinginu, stefnir í að þing klárist ekki fyrr en í allra fyrsta lagi í lok næstu viku. 38 mál bíða, þar af 22 forgangsmál ríkisstjórnarinnar. Þungt að ná samkomulagi um breytingar á stjórnarskrá. Á fundinum auk Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, þau Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra og Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra.