Viðskiptaráðherra, greinir frá málum í vinnslu og málum sem hafa hlotið samþykki, þar á meðal samþykkt um aukið gegnsæi og FME. Til meðferðar eru enn í þinginu lög um breytingu á hlutafélögum, sem á að auka gegnsæi og gera auðveldara að finna út eignaraðild. Að auki frumvarp um slit fjármálafyrirtækja og hvernig farið er með þessi fyrirtæki í gjaldþrotameðferðum. Þá einnig mál er varðar hvernig tekið er á kröfumálum í þrotabú fyrirtækjanna, sem hefur verið unnið í góðri samvinnu við kröfuhafa og getur flýtt fyrir faglegri meðferð slíkra mála.
Finnski sérfræðingurinn er að skila af sér skýrslu og tillögum öðru hvoru megin við helgina og verður hún þá gerð opinber. Þá hafa FME og hinn sérstaki saksóknari fundað og komið sér upp verkaskiptingu og upplýsingaflæði, sem m.a. á að flyta fyrir rannsóknum og koma í veg fyrir tvöfeldni í vinnuferli.