Föstudaginn 7. nóvember kl. 16 opna systurnar Elísabet Rún og Elín Edda myndasögusýningu í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Á sýningunni verður fyrsta myndasaga þeirra í fullri lengd, Plantan á ganginum.
Plantan á ganginum birtist upphaflega sem vefmyndasaga og fór fyrsti ramminn í loftið þann 20. júní 2012. Systurnar luku sögunni í byrjun ársins 2014 og hafa síðan unnið að því að gefa hana út á prenti. Bókin kemur út á sama tíma og sýningin opnar, föstudaginn 7. nóvember 2014.
Plantan á ganginum fjallar um Geirþrúði sem býr í íbúð fullri af plöntum og blómum í miðbæ Reykjavíkur. Hún umgengst fáa aðra en plönturnar sínar en skrifast á við frænku sína, Ýrr, sem er á sífelldu ferðalagi um heiminn. Líf Geirþrúðar, sem áður var heldur tíðindalaust, breytist þegar hún kemur afar sérstakri plöntu fyrir á stigaganginum í húsinu. Sá atburður leiðir til þess að hún kynnist nágranna sínum, Örvari, og sér þá að þau eiga meira sameiginlegt en hún hafði haldið.
Plantan á ganginum er ljóðræn og tilraunakennd saga um vináttu og að vera öðruvísi. Sagan er samvinnuverkefni systranna og er því teiknuð í tveimur stíltegundum. Auk þess leituðust báðir teiknarar við að leyfa sköpunarkraftinum og fjölbreytileika teikningarinnar að ráða för.
Hægt er að nálgast myndasöguna á slóðinni: theplantinthehallway.tumblr.com/.
Í myndbandinu hljómar lagið Catch the Light sem notað er með góðfúslegu leyfi Sin Fang.