Þrýstingssár eru alvarlegur fylgikvilli legu og sjúkdóma og geta verið mjög kvalafull. Sjúklingar á sjúkrahúsum eru sérstaklega útsettir fyrir þessu vandamáli. Á Landspítala sýnir starfsfólk mikið frumkvæði og vinnur faglega að því verkefni að fyrirbyggja þrýstingssár.
Verkefnastjóri þrýstingssáravarna á Landspítala er Hulda Margrét Valgarðsdóttir. Hún og kollegar hafa nú íslenskað leiðbeiningamyndskeið fyrir starfsfólk í heilbrigðisþjónustu. Þulur er Svarfdælingurinn Jón Baldvin Halldórsson hjá samskiptadeild Landspítala.
Myndskeiðið var hannað af evrópsku þrýstingssárasamtökunum EPUAP (European Pressure Ulcer Advisory Panel). Myndskeiðið segir frá eðli þrýstingssára á einfaldan hátt og hvað hægt er að gera til fyrirbyggja þau.