Heimsins jól - fjöltyngt jóladagatal 2023
Samtökin Móðurmál kynna til leiks skemmtilegt jóladagatal! Á hverjum degi í desember verður hægt að opna fyrir jólakveðju á einu af þeim 7000 tungumálum sem töluð eru í heiminum.
Í skólastarfi verður hægt að nota jóladagatalið sem hluta af vitundarvakningu um tungumál og þá auðlind sem felst í því að geta talað fleiri en eitt eða tvö tungumál.
Jóladagatalið verður að finna á vef og samfélagsmiðlum undir “Móðurmál - samtök um tvítyngi” allan desember. Það er öllum opið að dreifa því og nota í því samhengi sem gæti átt við.
Kennarar eru hvattir til að hefja alla skóladaga í desember með því að opna “glugga” að heiminum, bera saman tungumálin, skoða hvar þau eru töluð o.s.frv. Hægt verður að láta börn og ungmenni skreyta veggi skólans með jólakveðjum á mismunandi móðurmálum.
Jóladagatalinu fylgja leiðbeiningar og hugmyndir um notkun þess í kennslustofunni.
Tilgangurinn er m.a að vekja athygli á því að fjölbreytni og fjöltyngi eru mikið ríkidæmi en sú áhersla tengist bæði Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og Barnasáttmálanum.
Sjá nánar: modurmal.com/heimsins-jol-fjoltyngt-joladagatal-2023/
Jóladagatalið er á vegum Samtakanna Móðurmáls og birtist í samstarfi við:
Íslensku UNESCO nefndina
Vigdísarstofnun
Reykjavíkurborg
Miðju máls og læsis
Hólabrekkuskóla
Fellaskóla